„Það skiptir mig miklu máli að sýna verk mín á opnum svæðum og í opinberu rými; bæði á varanlegum stöðum en einnig á tímabundnum sýningum sem hafa orðið stór hluti af mínum ferli. Þar er oft varpað sterku ljósi á verkin bæði hérlendis og…
![Kúnst Það hefur verið mín gæfa að gera það sem ég vildi í myndlist, segir listakonan mikilvirka hér í viðtalinu.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/574000d7-9a9e-4faf-9945-fa0c95361979.jpg)
Kúnst Það hefur verið mín gæfa að gera það sem ég vildi í myndlist, segir listakonan mikilvirka hér í viðtalinu.
— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það skiptir mig miklu máli að sýna verk mín á opnum svæðum og í opinberu rými; bæði á varanlegum stöðum en einnig á tímabundnum sýningum sem hafa orðið stór hluti af mínum ferli. Þar er oft varpað sterku ljósi á verkin bæði hérlendis og erlendis,“ segir Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari.
„Það fara ekki allir á gallerí og söfn. Því er stórkostlegt að sjá viðbrögð fólks sem næstum dettur um listaverk í almannarými. Listin og lífið verður eitt. Ég vil helst að fólk sjái verkin og að þau hafi áhrif á fólk, að þau séu eins konar gjöf í amstri dagsins,“ segir Steinunn.
Andstæðar fígúrur
Höggmyndir Steinunnar Þórarinsdóttur eru auðþekktar af handbragði hennar og stíl. Þær
...