![Efstur Xander Schauffele hefur leikið á 65 og 66 höggum í París.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/3b6ecb61-cfc8-4fbd-86e1-4290d525f5f3.jpg)
Efstur Xander Schauffele hefur leikið á 65 og 66 höggum í París.
— AFP/John MacDougall
Xander Schauffele frá Bandaríkjunum, Hideki Matsuyama frá Japan og Tommy Fleetwood frá Bretlandi eru efstir og jafnir eftir annan golfhring Ólympíuleikanna í París en þeir eru allir á ellefu höggum undir pari vallarins. Spánverjinn Jon Rahm er næstur á níu undir pari. Scottie Scheffler frá Bandaríkjunum, efsti maður heimslistans, er í tíunda sæti á sex höggum undir pari og einu höggi á eftir honum er Rory McIlroy, sem keppir
...