![Tilfinningabeygja Berglind Rós Magnúsdóttir stofnaði ástarrannsóknafélag með Silju Báru Ómarsdóttur.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/be4525f4-6fbb-4eca-beb1-fcc2b2935e1a.jpg)
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Annað tölublað Ritsins 2021, tímarits Hugvísindastofnunar, var lagt undir ástarrannsóknir og í eins konar inngangi að því sem á eftir fylgir, segja þau Berglind Rós Magnúsdóttir, Torfi Tulinus, Guðrún Steinþórsdóttir og Sigrún Margrét Guðmundsdóttir að undanfarin ár hafi áherslan í hug- og félagsvísindum „orðið æ meir á svið tilfinninga. Hefur þetta verið nefnt „tilfinningabeygjan“ í akademískum rannsóknum“, en í heftinu er einnig gagnrýnin rannsóknarhefð kynnt, svokallaðar „ástarrannsóknir“.
Í Dagmálsviðtali segir Berglind að það séu til margir mismunandi angar af ástarrannsóknum, en í fyrsta lagi megi segja að listin hafi átt ástina óskipta og bókmenntirnar þar ekki síst. „Bókmenntahefðin byggir auðvitað á því að rannsaka
...