Guðmundur Davíðsson húsasmiður fæddist í Reykjavík 10. júlí 1940. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. júlí 2024.

Foreldrar Guðmundar voru Davíð Ágúst Guðmundsson, f. 23. október 1917, d. 17. apríl 1974, og Anna Pálsdóttir, f. 7. júní 1918, d. 10. maí 1961. Alsystkini Guðmundar eru Páll, f. 23. október, 1943, d. 20. desember 2015, Magnús Gestur, f. 11. apríl 1945, Unnur Guðrún, f. 9. maí 1948, d. 15. janúar 2011, og Ásgeir Þór, f. 25. janúar 1950, d. 19. apríl 2012. Samfeðra systkini Guðmundar eru Bergljót, f. 24. ágúst 1952, Ragnheiður Ólafía, f. 28. júlí 1954, Helgi Jón, f. 18. ágúst 1955, María Sveinfríður, f. 26. júní 1957, Davíð Ágúst, f. 2. febrúar 1961, og Jakobína Valgerður, f. 13. mars 1963. Sammæðra bróðir er Ólafur Helgi Helgason, f. 3. maí 1955.

Fyrri eiginkona Guðmundar hét Þorbjörg Hilbertsdóttir, f. 13. apríl 1939, d. 6.

...