Hinsegin dagar hefjast í dag og verður opnunarhátið þeirra haldin í Grósku klukkan 20 í kvöld. Hátíðin fagnar í ár 25 ára afmæli og verður öllu tjaldað til vegna afmælisins að sögn Helgu Haraldsdóttur, formanns Hinsegin daga
![Gleðigangan Hinsegin dagar fagna nú 25 ára afmæli sínu, en hápunktur þeirra er sem fyrr Gleðigangan, sem haldin verður á laugardaginn.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/dd9fa179-cfe2-49f3-82a9-a1f00a72ed30.jpg)
Gleðigangan Hinsegin dagar fagna nú 25 ára afmæli sínu, en hápunktur þeirra er sem fyrr Gleðigangan, sem haldin verður á laugardaginn.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðrún S. Arnalds
gsa@mbl.is
Hinsegin dagar hefjast í dag og verður opnunarhátið þeirra haldin í Grósku klukkan 20 í kvöld. Hátíðin fagnar í ár 25 ára afmæli og verður öllu tjaldað til vegna afmælisins að sögn Helgu Haraldsdóttur, formanns Hinsegin daga.
„Það hefur gengið ótrúlega vel að skipuleggja vikuna, og stefnir allt
...