![Einbeittur Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR hugsi við keppni í Einvíginu á Nesinu í gær en hann vann þá góðgerðarmótið í fyrsta sinn.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/311b01d1-10a6-4d40-8ca9-759ca4a27cdb.jpg)
Einbeittur Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR hugsi við keppni í Einvíginu á Nesinu í gær en hann vann þá góðgerðarmótið í fyrsta sinn.
— Morgunblaðið/Ólafur Árdal
Kylfingurinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR stóð uppi sem sigurvegari í Einvíginu á Nesinu sem fram fór í 28. sinn á Nesvellinum á Seltjarnarnesi í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem Dagbjartur hrósar sigri á mótinu, sem er árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, NK.
...