Árni Árnason fæddist 16. maí 1966. Hann lést 18. júlí 2024.

Útför Árna fór fram 30. júlí 2024.

Elsku frændi, það er svo óraunverulegt að skrifa þessar línur og kveðja þig og trúa því að þú sért farinn. Allt of fljótt og allt of skyndilega. Ég veit að þú ert kominn í faðminn á ömmu og afa, þið voruð flott tríó og það er það eina sem huggar á þessari stundu.

Þú varst „Frændinn“, maður sagði ekki Árni án þess að segja „frændi“ og iðulega skrifaði ég það með nafninu þínu á jólakortin, Árni frændi Árnason. Þú varst mér líka eins og hálfgerður stóri bróðir, enda bara 12 ár á milli okkar. Og þú stríddir mér líka eins og stóri bróðir, alltaf góðlátlega þó. En við reyndar elskuðum bæði að rugla hvort í öðru, alveg frá því ég man eftir mér í eldhúskróknum í Geitlandinu. Ein minning sem

...