Hákon Þór Svavarsson hafnaði í 23. sæti af 30 keppendum í keppni í leirdúfuskotfimi með haglabyssu á sínum fyrstu Ólympíuleikum á laugardag, en skotkeppnin fór fram í Châteauroux, 270 kílómetra norður af París
![Frumraun Hákon Þór Svavarsson keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Châteauroux í Frakklandi um helgina og stóð sig með miklum ágætum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/13e2b807-b5f0-44ae-835f-6ebad83a97bb.jpg)
Frumraun Hákon Þór Svavarsson keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Châteauroux í Frakklandi um helgina og stóð sig með miklum ágætum.
Í Châteauroux
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hákon Þór Svavarsson hafnaði í 23. sæti af 30 keppendum í keppni í leirdúfuskotfimi með haglabyssu á sínum fyrstu Ólympíuleikum á laugardag, en skotkeppnin fór fram í Châteauroux, 270 kílómetra norður af París.
Hákon lauk leik með 116 stig, en hann gerði sér lítið fyrir og var með fullt hús stiga, 25 stig, í fimmtu og síðustu umferðinni. Eru stigin 116 besti árangur Íslendings í greininni á Ólympíuleikum.
Gengur sáttur frá borði
Alfreð Karl Alfreðsson fékk 111 stig er hann hafnaði í 47. sæti á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. Eru þeir einu tveir Íslendingarnir sem hafa keppt í greininni á Ólympíuleikum.
...