Aðalgeir Heiðar Karlsson fæddist 1. október 1948 á Húsavík. Hann lést 12. júlí 2024. Útför hans fór fram 24. júlí 2024.

Elsku pabbi minn.

Þú varst besti pabbi sem hægt var að hugsa sér að eignast og ég man vel eftir fyrsta kvöldinu mínu í Múla, þegar ég kom þangað þriggja ára gömul í varanlegt fóstur, ég var strax kominn upp á axlirnar á þér og kallaði þig pabba frá fyrsta degi. Þú varst ávallt óhræddur við að segja þínar skoðanir og sumt var tjáð á hærri nótunum en á sama tíma varstu mjög viðkvæmur og máttir ekkert aumt sjá. Ég man hvernig ég þurfti að keppast við forvera mína í sveitinni, bæði fósturbræður mína Óla Svan og Einar, og eins alla þá drengi sem komu í sveitardvöl, og ég þurfti að finna leiðir til að sanna ágæti mitt og sýna að ég gæti nú gert ýmislegt þótt ég væri stelpa. Ég fékk ekki að fara á dráttarvélarnar jafn ung og strákarnir

...