![Frískápur Rósa Björg Jónsdóttir við frískápinn sem er fljótur að tæmast.](/myndir/gagnasafn/2024/08/06/29515723-87ba-463e-b53f-75753b29f0f5.jpg)
Herdís Tómasdóttir
herdis@mbl.is
„Hugsunin á bak við frískápana sú að þú deilir mat, sem þú ætlar ekki að nota, með einhverjum sem getur notað hann svo neysluhæfur matur lendi ekki í rusli eða landfyllingu. Þetta er ekki hjálparstarfsemi heldur mega allir setja í og taka mat úr skápnum,“ segir Rósa Björg Jónsdóttir en hún er ein af þremur konum sem er með yfirumsjón með frískápnum við Neskirkju í Vesturbænum.
Uppruna frískápanna má rekja til 2021 er Kamila Walijewska og Marco Pizzolato komu fyrir frískáp við húsnæði Andrýmis við Bergþórugötu í miðborg Reykjavíkur. Núna þremur árum síðar má finna frískápa dreifða víða um land allt.
Fyllir á tvisvar á dag
Að sjá um frískápinn er fullt starf en í júlímánuði hafði Rósa Björg eytt hátt í sex klukkustundum á dag alla virka daga í það að sækja mat til að fylla á, en mest allt af matnum þetta sumarið
...