Saxófónleikarinn Jóel Pálsson kemur með kvartett ­sínum fram á tónleikum í sumartónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum Hörpu í kvöld kl. 20. Kvartettinn skipa auk Jóels þeir Hilmar Jensson á gítar, Birgir Steinn Theodórsson á bassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur. Á efnisskránni eru „frumsamin verk í bland við vel valin númer eftir aðra höfunda,“ segir í fréttatilkynningu frá klúbbnum. Miðar fást í miðasölu Hörpu og á vefnum harpa.is.