Ólafur Pálsson
olafur@mbl.is
Aurskriða sem tók úr hlíðinni suðaustan við Skíðaskálann í Hveradölum um miðjan júlí hefur líklega rofið efsta jarðvegslagið ofan af gufuhver. Þráinn Friðriksson, jarðfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, hefur skoðað verksummerki við skriðuna í félagi við sérfræðinga frá ÍSOR, Veðurstofu Íslands og Eflu. Segir hann allt benda til að fyrst hafi farið af stað moldarrík jarðvegsskriða og bendir á að skriðan sé moldarkennd að neðan. Megnið af skriðunni sé þá þakið hveraleir sem bendi til að þessi suðan hafi átt sér stað á meðan skriðan var að renna fram. Þannig hafi skriðan komið af stað hvellsuðu fremur en að orðið hafi fyrirvaralaus gufusprenging í hvernum sem aftur hafi sett skriðuna af stað.
Leiðin sem skriðan fór, um 90 metra suðvestur undan frekar litlum halla að skurði samsíða malarvegi
...