S&P 500 hækkaði um 1,7% í gær.
S&P 500 hækkaði um 1,7% í gær. — AFP

Helstu hlutabréfavísitölur víða um heim hækkuðu í gær eftir talsverða lækkun daginn áður. Japanska Nikkei 225-vísitalan lækkaði um 12,4% á mánudag en það er ein mesta lækkun á verðbréfamörkuðum frá „Svarta mánudeginum” árið 1987. Lækkunin á mörkuðum hrinti af stað keðjuverkandi áhrifum og allar helstu hlutabréfavísitölur víða um heim lækkuðu á mánudag.

Samkvæmt fréttaveitu Reuters eru helstu ástæðurnar fyrir því að markaðir jöfnuðu sig í gær þær að forsvarsmenn Seðlabanka Bandaríkjanna kváðu niður þann orðróm um að kreppa væri yfirvofandi. Þar að auki hækkuðu ýmis fyrirtæki á mörkuðum. Tæknifyrirtækið NVIDIA hækkaði mest en það hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu. Fyrirtækið hefur hækkað um meira en 200% það sem af er þessu ári.

S&P 500 vísitalan hækkaði um 1,7% í gær og fleiri hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu. Einnig hækkuðu

...