Eva Ruza er mætt aftur eftir stórgott sumarfrí og er með miður góðar fréttir fyrir aðdáendur raunveruleikasjónvarps. „Það hefur verið staðfest af framleiðsluteymi Love Island að það verði ekki svokallaður „reunion“-þáttur

Eva Ruza er mætt aftur eftir stórgott sumarfrí og er með miður góðar fréttir fyrir aðdáendur raunveruleikasjónvarps. „Það hefur verið staðfest af framleiðsluteymi Love Island að það verði ekki svokallaður „reunion“-þáttur. Sá þáttur hefur yfirleitt verið gríðarlega vinsæll því þar mætast keppendurnir og fara yfir hápunkta – og já, lágpunkta, og þar er vanalega tekist hressilega á,“ segir Eva sem einnig staðfestir að Bachelor in Paradise verði ekki sýndur í ár. Við getum þó huggað okkur við að Bachelorette er mætt á Sjónvarp Símans.