Eiríkur Snorrason fæddist í Reykjavík 21. mars 1959. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu að Eiríksgötu 9 aðfaranótt mánudagsins 22. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Snorri Guðmundsson leigubílstjóri, f. 3.6. 1915, d. 5.8. 1981, og Þórey Eiríksdóttir húsmóðir, f. 3.10. 1929, d. 29.3. 2022.

Eiríkur var ókvæntur og barnlaus.

Systkini Eiríks eru þrjú. Þau eru: 1) Guðmundur endurskoðandi, búsettur í Reykjavík, f. 7.2. 1958, kvæntur Sigríði Elsu Oddsdóttur, börn þeirra eru Berglind, Snorri, Ásta Hrund og Brynja. 2) Ragnheiður skrifstofumaður, búsett í Kópavogi, f. 29.5. 1960, gift Theodóri Guðfinnssyni, þeirra börn eru Bryndís María og Thelma Björk. Fyrir átti Ragnheiður Þóreyju Heiðdal. 3) Sigríður bókari, búsett í Calgary í Kanada, f. 15.11. 1966, í sambúð með Kjartani Sigurðssyni. Þeirra börn

...