Eiríkur Snorrason fæddist 21. mars 1959. Hann lést 22. júlí 2024. Útför hans fór fram 7. ágúst 2024.

Elsku Eiríkur frændi,

Ég er ekki ennþá búin að átta mig á því að þú sért farinn yfir í Sumarlandið, þetta gerðist svo skjótt og óvænt. Sýnir okkur mikilvægi þess að njóta hvers dags eins og hann væri okkar síðasti, því lífið er bæði stutt og ófyrirsjáanlegt.

Þú varst eins og auka afi fyrir okkur frændsystkinin þar sem þú bjóst alla tíð með ömmu á Eiríksgötunni og varst alltaf til staðar þegar við vorum þar. Við frændsystkinin elskuðum að fíflast með þér og þú varst alltaf til í glens og gaman, leyfðir okkur að vaka fram eftir þegar við gistum hjá ykkur, og þú passaðir upp á að alltaf væri nóg til af laugardagsnammi og saltstöngum. Eitt sumarið buðuð þið amma mér og tveimur frænkum í bústaðarferð austur á Hérað

...