Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur ferðaðist nýlega til Parísar til að sækja setningarathöfn Ólympíuleikanna á vegum Reykjavíkurborgar, en Einar fékk boð frá borgarstjóra Parísar, Anne Hidalgo, um að sækja athöfnina.

Setningarathöfnina sóttu háttsettir embættismenn frá ýmsum löndum og einnig var nokkuð um frægar stjörnur.

Einar fór í ferðina án aðstoðarmanns eða annarra starfsmanna Reykjavíkur, en Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og eiginkona Einars, fylgdi honum á eigin kostnað. Þetta staðfesti Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, í skriflegu svari Morgunblaðið.

„Kostnaður við ferð borgarstjóra var sem hér segir: Flug til Parísar kostaði 107.295 krónur og gisting á hótelinu Novotel Montparnasse var 1.112,78 evrur,

...