Martin Schlüter
Martin Schlüter

Martin Schlüter hefur tekið við starfi framleiðslustjóra hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hann nam kvikmyndaleikstjórn og -framleiðslu við Deutsche Film und Fernsehakademie í Berlín og hefur starfað hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands í 17 ár, fyrst sem framleiðslustjóri, svo kvikmyndaráðgjafi í 11 ár og sl. fimm ár sem framleiðandi. Að auki hefur hann sinnt sjálfstæðum verkefnum samhliða störfum sínum hjá Kvikmyndamiðstöð sem framleiðslustjóri og framkvæmdastjóri fyrir íslenska, þýska og alþjóðlega kvikmyndaframleiðslu.