Andrey Rudkov
Andrey Rudkov

Veitingastaðurinn Tokyo sushi hagnaðist um 63 milljónir á síðasta ári en til samanburðar nam hagnaðurinn 42 milljónum króna árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi Tokyo veitinga ehf. fyrir árið 2023.

Rekstrartekjur námu 1,8 milljörðum króna en námu 1,7 milljörðum árið áður. Rekstrarhagnaður nam 79 milljónum og jókst úr 49 milljónum frá fyrra ári. Eignir félagsins námu 457 milljónum í lok síðasta árs en eigið fé var 147 milljónir á sama tíma. Framkvæmdastjóri félagsins er Andrey Rudkov.