Víkingur Miðjumaðurinn Tarik Ibrahimagic er kominn í Víkina.
Víkingur Miðjumaðurinn Tarik Ibrahimagic er kominn í Víkina. — Ljósmynd/Víkingur

Danski miðjumaðurinn Tarik Ibrahimagic er genginn til liðs við topplið Víkings úr Reykjavík í Bestu deild karla í knattspyrnu frá botnliði Vestra. Ibrahimagic, sem er 23 ára gamall, kom til Vestra frá Næstved á síðasta ári og var í lykilhlutverki þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Hann skrifaði á þriðjudag undir samning við Víking sem gildir út tímabilið 2026. Ibrahimagic spilaði 15 leiki fyrir Vestra í Bestu deildinni á yfirstandandi tímabili.