Hárgreiðslukona Hugrún veit hvaða ilmi á að velja.
Hárgreiðslukona Hugrún veit hvaða ilmi á að velja. — Ljósmynd/Eva Scram

Góður ilmur spilar stóran þátt í tilveru Hugrúnar Harðardóttur hárgreiðslumeistara. Eitt það skemmtilegasta sem hún gerir á ferðalögum erlendis er að elta uppi ilmhús og uppgötva ilmi sem vekja upp nýjar tilfinningar og eða rifja upp gamla tíma.

Hugrún er mörgum kunn en hún stofnaði og rak hársnyrtistofuna Barbarella coiffeur í miðbæ Reykjavíkur í tíu ár.

Smartland fékk hana til að rifja upp fimm ilmvötn sem hafa verið í uppáhaldi í gegnum tíðina.

Musk-olía

„Fyrsti ilmurinn er ógleymanlegur. Ég fékk musk-olíu í afmælisgjöf þegar ég var tíu ára gömul. Ilmurinn var sætur og mildur og hentaði fullkomlega fyrir unga dömu.“

Tommy Girl

„Ég má til með að nefna Tommy Girl frá Tommy Hilfiger.

...