Í dag, 8.8. 2024, fagna Margrét St. Nielsen og Sveinn Sveinsson, Ánalandi 6, Reykjavík, 60 ára brúðkaupsafmæli. Margrét ólst upp við Njálsgötuna, en Sveinn við Skúlagötuna

Í dag, 8.8. 2024, fagna Margrét St. Nielsen og Sveinn Sveinsson, Ánalandi 6, Reykjavík, 60 ára brúðkaupsafmæli. Margrét ólst upp við Njálsgötuna, en Sveinn við Skúlagötuna. Þau voru 16 ára þegar ástin kviknaði og tvítug giftu þau sig. Sveinn varð áttræður í mars og Margrét í júní.

Margrét og Sveinn halda upp á brúðkaupsdaginn og áttræðisafmælin tvö með dætrum sínum þremur þeim Steinunni, Sunnu og Söndru ásamt fjölskyldum þeirra, barnabörnum, barnabarnabörnum og vinum.

Þau hjónin eru iðin við að rækta líkama og sál, stunda golf af kappi, sund og gönguferðir og ferðast mikið innan lands sem utan. Þau leggja einnig mikið upp úr samveru við dætur sínar og fjölskyldur þeirra.