Tvíburarnir Hrefna Ósk og Elín Hrönn Jónsdætur tóku þátt í heimsmeti um liðna helgi, þegar þær mættu á stærstu tvíburahátíð heims, í fjórða skipti, í Twinsburg í Bandaríkjunum. Þar var heimsmet slegið í mætingu tvíbura á einum stað á sama tíma. Þær mættu í Ísland vaknar á K100 í gærmorgun og ræddu hátíðina og tvíburalífið en þær hafa slegið í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok upp á síðkastið. Þar deildu þær meðal annars skemmtilegum myndböndum í tengslum við hátíðina.
Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni á K100.is.