Hafsteinn Aðalsteinsson fæddist í Reykjavík 13. mars 1947. Hann lést á hjartadeild LSH eftir stutt veikindi 28. júlí 2024.

Foreldrar Hafsteins voru Aðalsteinn Eiríksson, f. 1909, d. 1950, og Dagmar Siggeirsdóttir, f. 1913, d. 1959. Fósturforeldrar Hafsteins voru Valdimar Þórarinsson, f. 1921, d. 2003, og Unnur Hjörleifsdóttir, f. 1928, Húsatúni í Haukadal, Dýrafirði. Systkini Hafsteins eru Eiríkur Vignir, f. 1934, d. 2010, Guðrún Aðalheiður, f. 1940, d. 2011, Aðalsteinn, f. 1941, d. 2014, og Olavía Helga, f. 1943.

Hinn 31. desember 1968 kvæntist Hafsteinn Gíslínu Matthildi Gestsdóttur, f. 1951. Börn þeirra eru: 1) Valdimar Gestur, f. 3.12. 1968, giftur Guðbjörgu Lilju Þórarinsdóttur, f. 1968. Börn þeirra eru: a) Þórarinn Ingi, f. 1990, dóttir hans er Embla Rún, f. 2019, og sambýliskona hans er Sunna Sigurjónsdóttir, f. 1984. b) Birgitta Ósk,

...