„Mér fannst við eiga frábæra leiki í júlí,“ sagði brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred Saraiva í samtali við Morgunblaðið. Hann var besti leikmaður Bestu deildar karla í júlí samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins en hann fékk fjögur M í fjórum leikjum Fram í mánuðinum
Bestur
Ásta Hind Ómarsdóttir
astahind@mbl.is
„Mér fannst við eiga frábæra leiki í júlí,“ sagði brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred Saraiva í samtali við Morgunblaðið.
Hann var besti leikmaður Bestu deildar karla í júlí samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins en hann fékk fjögur M í fjórum leikjum Fram í mánuðinum. Fram sigraði KR og Val, gerði markalaust jafntefli gegn Fylki og tapaði fyrir Víkingi.
„Á móti KR settum við mikinn kraft í leikinn og sýndum mikla vinnusemi. Við náðum inn marki undir lokin og mér fannst vinnan sem við unnum með Rúnari [Kristinssyni þjálfara] á undirbúningstímabilinu sýna sig. Við lögðum mikið á okkur á undirbúningstímabilinu með nýjan þjálfara, nýtt kerfi og nýja leikmenn sem komu
...