Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík máttu láta sér jafntefli, 1:1, gegn Eistlandsmeisturum Flora Tallinn að góðu verða í fyrri leik liðanna í 3. umferð Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla á Víkingsvelli í gærkvöldi. Niðurstaðan var mikil vonbrigði en þrátt fyrir það sagði Karl Friðleifur Gunnarsson við Morgunblaðið eftir leikinn að Víkingur væri mun betra liðið og myndi koma með sigur heim úr farteskinu frá Eistlandi eftir síðari leikinn í næstu viku. » 26