![Þrenna Erla Karitas Jóhannesdóttir skoraði þrennu fyrir ÍA.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/1e00b017-c948-48f6-a939-d6621301618e.jpg)
Þrenna Erla Karitas Jóhannesdóttir skoraði þrennu fyrir ÍA.
— Morgunblaðið/Óttar Geirsson
ÍA kom sér í góða stöðu í toppbaráttu 1. deildar kvenna í knattspyrnu með því að vinna botnlið ÍR, 3:2, í Breiðholti í gærkvöldi. Erla Karitas Jóhannesdóttir skoraði öll þrjú mörk ÍA, sem er í fjórða sæti með jafnmörg stig og Grótta og ÍBV í sætunum fyrir ofan.
Selfoss og HK gerðu þá jafntefli, 2:2, á Selfossi. HK komst í 0:2 áður en Katrín Ágústsdóttir og Sonia Rada skoruðu fyrir Selfoss, sem er áfram í fallsæti.