Bændur eru nú margir hverjir í óðaönn að klára seinni eða síðasta slátt sumarsins líkt og í Skorradal þar sem myndin að ofan var tekin. Veðráttan hefur verið upp og ofan í sumar og margir bundu vonir við að veðrið færi að skána eftir…
![](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/bb5b7f5c-25b8-4981-84b1-88f9465cb717.jpg)
— Morgunblaðið/Eggert
Bændur eru nú margir hverjir í óðaönn að klára seinni eða síðasta slátt sumarsins líkt og í Skorradal þar sem myndin að ofan var tekin. Veðráttan hefur verið upp og ofan í sumar og margir bundu vonir við að veðrið færi að skána eftir verslunarmannahelgi en sé miðað við langtímaspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar eru líkur á norðanátt næstu tvær til þrjár vikurnar. Henni fylgir kólnandi veður.