Þórdís Þorkelsdóttir fæddist á Siglufirði 22. október 1952. Hún lést 30. júlí 2024.

Hún var dóttir hjónanna Þorkels Benónýssonar, f. 15.9. 1920, d. 6.1. 1993, og Margrétar Brands Viktorsdóttur, f. 28.9. 1922, d. 29.12. 2009.

Systkini Þórdísar eru: Kristinn Jón, f. 1941, d. 2017, Sóley Anna, f. 1943, Benóný Sigurður, f. 1944, Viktor Þór, f. 1946, d. 2008, Sólveig, f. 1950, og Sigurveig, f. 1954, d. 2012.

Þórdís var gift Karli Óla Lárussyni, f. 2.7. 1952. Eignuðust þau tvö börn, Tinnu Mjöll, f. 17.2. 1982, maki Freyr Ingason, og Sólveigu Margréti, f. 17.1. 1985, maki Jakob Einar Jakobsson. Börn Sólveigar og Jakobs eru Mía Henríetta og Þórdís Dúa.

Þórdís ólst upp á Siglufirði þar sem hún lauk hefðbundinni skólagöngu. Hún stundaði svo nám

...