— Ljósmynd/Sena Live

„Ég verð að segja að ég algjörlega elska Ísland,“ sagði diskógoðsögnin Kathy Sledge, í hljómsveitinni Sister Sledge, í samtali við K100 en hún hefur dvalið hér á landi síðustu daga. Hún hélt heljarinnar diskópartí í Hörpu á föstudagskvöld. Sledge hefur verið einstaklega heppin með veður og segir Íslandsferðina hafa verið hápunkt tónleikaferðalags hennar sem nú er á enda.

Spurð út í hvernig það hafi verið að verða skyndi­lega stór­stjarna á átt­unda og ní­unda ára­tugn­um viður­kenn­ir hún að hafa ekki bú­ist við þeirri vel­gengni sem bandið átti eft­ir að ná en hún lýsti því meðal annars hvernig framleiðandi hennar tilkynnti henni að eitt frægasta lag bandsins, „We are family“, yrði algjör smellur. „Hann vissi það,“ segir Sledge.

Viðtalið má sjá í heild sinni á K100.is