— AFP

Bjargvættur Stórleikarinn Robert Downey jr. tilkynnti endurkomu sína í Marvel-kvikmyndaheiminn á Comic Con-hátíðinni í lok júlí. Downey mun fara með hlutverk Doctor Doom í kvikmyndunum Avengers: Doomsday og Avengers: Secret Wars. Downey hefur verið í guðatölum hjá aðdáendum Marv­el-kvikmyndaheimsins eftir frammistöðu sína sem Tony Star, eða Iron Man, sem hann lék í hinsta sinn árið 2019 í Avengers: Endgame. Síðan þá hefur Marv­el-kvikmyndaheimurinn átt erfitt uppdráttar vegna hraps í vinsældum og binda menn nú miklar vonir við það að endurkoma Downey muni skila áhorfendum aftur í kvikmyndahúsin.