Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur tók afgerandi forystu í karlaflokki á fyrsta keppnisdegi Hvaleyrarbikarsins í golfi í Hafnarfirði og setti um leið nýtt vallarmet á Hvaleyrarvelli í gær. Tómas lék á 65 höggum í blíðskaparveðri og var á sjö höggum undir pari vallarins sem hefur verið breytt á síðustu árum. Fyrr í sumar voru tvær nýjar brautir teknar í notkun og besta skorið af meistaraflokksteigum eftir það var 68 högg hjá Axel Bóassyni, eða þar til í gær.