Bliki Kristín Dís í leik með Breiðabliki fyrir þremur árum.
Bliki Kristín Dís í leik með Breiðabliki fyrir þremur árum. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Knattspyrnukonan Kristín Dís Árnadóttir hefur samið við uppeldisfélag sitt Breiðablik um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil. Kristín Dís kemur frá danska úrvalsdeildarfélaginu Bröndby, þar sem hún hafði leikið frá því í janúar árið 2022. Kristín Dís er 24 ára varnarmaður sem hefur verið í A-landsliðshópnum að undanförnu en á þó enn eftir að leika sinn fyrsta landsleik. Hún hefur leikið 89 leiki og skorað sjö mörk í efstu deild fyrir Breiðablik.