Fjórir sóttu um embætti yfirdýralæknis hjá Matvælastofnun en umsóknarfrestur rann út 29. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaráðherra, en embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 4. júlí síðastliðinn.
Þeir sem sóttu um starfið eru Brigitte Brugger sérgreinadýralæknir, Egill Þorri Steingrímsson dýralæknir, Vigdís Tryggvadóttir sérgreinadýralæknir og Þóra Jóhanna Jónasdóttir sérgreinadýralæknir.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra skipar í embættið til fimm ára eftir matsgerð hæfnisnefndar.