Unnar Karl Halldórsson fæddist 12. október 1973. Hann lést 20. júlí 2024. Útför fór fram 31. júlí 2024.

Elsku Unni besti brói og mágur, mikið verður þín sárt saknað. Það að fá að fylgja þér og fjölskyldu þinni gegnum lífið eru svo mikil forréttindi og að hafa getað fengið að vinna með þér og fjölskyldum okkar á hverjum degi síðustu ár er ómetanlegt.

Við höfum gengið í gegnum svo margt saman og óteljandi góðar minningar eigum við í minningabankanum. Öll ferðalögin utanlands og innanlands, road trip sem óvænt urðu þegar skroppið var í pínurúnt, sem enduðu með eins dags hringferðum. Það skipti engu máli þó við værum með ung börn, að taka „smá“rúnt var ekkert mál. Alltaf var endað í ævintýrum og skoðað aðeins meira en lagt var upp með. Hvað ætli við séum búin að keyra marga km saman?

Kanadaferðin í ágúst

...