Framboð á gistingu í Þorlákshöfn og nágrenni mun margfaldast á næstu árum ef áform fjárfesta ná fram að ganga. Þau eru hluti af mikilli uppbyggingu sem er áformuð í Ölfusi á næstum árum en fjallað var um áformin í Morgunblaðinu í fyrradag
— Teikning/Hamrakór/ONNO

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Framboð á gistingu í Þorlákshöfn og nágrenni mun margfaldast á næstu árum ef áform fjárfesta ná fram að ganga. Þau eru hluti af mikilli uppbyggingu sem er áformuð í Ölfusi á næstum árum en fjallað var um áformin í Morgunblaðinu í fyrradag.

Eitt þessara verkefna hefur vinnuheitið Hótel Black Beach og felur í sér uppbyggingu á hóteli austan við golfvöllinn við Þorlákshöfn.

Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna, segir verkefnið á frumstigi.

Spurður um tímaáætlun þessa verkefnis segir Sveinn að hún liggi ekki endanlega fyrir. Gera megi ráð fyrir að það taki ár að ljúka hönnuninni og að síðan muni framkvæmdir taka um tvö ár en samkvæmt því gætu verklok orðið í fyrsta lagi árið 2027.

...