40 ára Sólveig ólst upp á Selfossi en býr í Kópavogi. Hún er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og atvinnuflugmannsréttindi og er flugmaður hjá Icelandair. Áhugamálin eru ferðalög, útivera og hreyfing.


Fjölskylda Maki Sólveigar er Ívar Atli Sigurjónsson, f. 1993, flugmaður hjá Icelandair. Börn þeirra eru Pétur Sveinn, f. 2018, og Katla, f. 2021. Foreldrar Sólveigar eru Svanhvít Hermannsdóttir, f. 1955, sagnfræðingur og ferðaþjónustubóndi, búsett á Lambastöðum í Flóa, og Sveinn Sigursveinsson, f. 1951, mjólkurbílstjóri, búsettur á Selfossi. Stjúpfaðir Sólveigar er Almar Sigurðsson, f. 1959, ferðaþjónustubóndi á Lambastöðum.