Eiríkur Snorrason fæddist 21. mars 1959. Hann lést 22. júlí 2024. Útför hans fór fram 7. ágúst 2024.

Það var okkur HL-félögum mikið áfall að frétta um óvænt andlát Eiríks Snorrasonar, félaga okkar, 22. júlí síðastliðinn. Eiríkur sem var hreystin uppmáluð, á besta aldri og engan hefði órað fyrir að hann félli frá á undan okkur hinum sem eldri erum.

Eiríkur fór að stunda líkamsrækt í HL-stöðinni í Sigtúni fyrir meira en tveimur áratugum síðan. Þar stunda karlar og konur leikfimi og lyftingar undir handleiðslu frábærra sjúkraþjálfara enda er þessi stöð ætluð þeim sem eitthvað hafa fundið til fyrir hjarta og eru þarna til að ná upp þoli og þreki. Hjá mörgum okkar hefur mæting síðdegis tvisvar í viku í HL-stöðina orðið að lífsstíl og svo var um Eirík vin okkar. Hann var samviskusamur starfsmaður og mætti stundum korteri eftir að æfing hófst vegna

...