Benedikt Þórir Ólafsson fæddist 10. apríl 1950. Hann lést 23. júlí 2024. Útför fór fram 9. ágúst 2024.

Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama;

en orðstír

deyr aldregi,

hveim er sér góðan getur.

(Úr Hávamálum)

Benedikt Ólafsson var einn sá besti maður sem ég hef kynnst. Ég veit ekki hvernig ég get nákvæmlega skilgreint samband okkar, hann var frændi og eins konar bróðir sem gaf föðurleg ráð og varð afi barnanna minna en umfram allt vorum við Bendi vinir. Í hjörtum foreldra minna átti hann sérstakt pláss, kom oft til okkar í Skeiðarvoginn og þegar hann opnaði búðina

...