TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hvaða tilgangi þjóna tónlistarhátíðir? Af hverju eru þær haldnar, af hverjum, fyrir hverja og af hverju mætir fólk ár eftir ár? Aðstandendur Norðanpaunks buðu mér að kíkja á sig um liðna helgi og lögðum við hjónin af stað í bítið á laugardagsmorgni með skyldustoppi í Geirabakaríi að sjálfsögðu. Ég hef lengi vitað af hátíðinni, hef alltaf verið á leiðinni, og því fagnaði ég þessu góða boði. Hátíðin er nokk einstök, er „gerðuþaðsjálfur“-hátíð eða DIY („do-it-yourself“), nálgun sem snýst um grasrótarstarfsemi og sjálfbærni. Hugtakið „gerumþaðsaman“ er þá að ryðja sér til rúms líka og er meira hæfandi í raun í þessu tilfelli (DIT= „do-it-together“). Hátíðin er haldin í sönnum pönk/kommúnuanda og er í raun réttu á vegum þeirra sem hana sækja. Hún er skilgreind
...