Engin fíkniefni reyndust vera um borð í báti sem kom að landi í Höfn í Hornafirði í fyrrakvöld, en töluverður viðbúnaður var af hálfu lögreglu og tollgæslu vegna grunsemda um smygl. „Engin fíkniefni reyndust vera í pakkningum sem fundust við …
Engin fíkniefni reyndust vera um borð í báti sem kom að landi í Höfn í Hornafirði í fyrrakvöld, en töluverður viðbúnaður var af hálfu lögreglu og tollgæslu vegna grunsemda um smygl.
„Engin fíkniefni reyndust vera í pakkningum sem fundust við tollskoðun um borð í skemmtibáti á Höfn í Hornafirði í gær,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en lögregla á Suðurlandi og tollgæslan komu einnig að aðgerðinni.
Pakkningar voru sendar til rannsóknar í Reykjavík, en ekkert misjafnt kom í ljós. Tveir skipverjar voru yfirheyrðir vegna málsins en eru nú frjálsir ferða sinna.