Íslensku keppendurnir fimm hafa lokið keppni á Ólympíuleikunum í París. Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee reið á vaðið fyrstur Íslendinga fyrir sléttum tveimur vikum síðan og kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir var síðust á fimmtudaginn var
Í París
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslensku keppendurnir fimm hafa lokið keppni á Ólympíuleikunum í París. Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee reið á vaðið fyrstur Íslendinga fyrir sléttum tveimur vikum síðan og kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir var síðust á fimmtudaginn var.
Þess á milli stakk Snæfríður Sól Jórunnardóttir sér til sunds, Guðbjörg Edda Hannesdóttir varð fyrst Íslendinga til að keppa í þríþraut á Ólympíuleikum og Hákon Þór Svavarsson mætti til leiks í leirdúfuskotfimi.
Hér fyrir neðan verður farið yfir árangur íslensku ólympíufaranna fimm í stafrófsröð.
Anton Sveinn McKee – leikarnir í París voru þeir fjórðu og síðustu hjá Antoni og keppti hann bæði í 100
...