Snoop Dogg og Martha Stewart vöktu mikla athygli áhorfenda.
Snoop Dogg og Martha Stewart vöktu mikla athygli áhorfenda. — AFP

Doggystyle Ætli nokkur hafi skemmt sér jafn vel á Ólympíuleikunum í ár og bandaríski rapparinn Snoop Dogg? Snoop varð fljótt að skemmtikrafti leikanna í gegnum störf sín sem fréttaritari NBC og náði að stela senunni hvert sem hann fór. Hann átti marga hápunkta á mótinu er hann mætti á ófáa viðburði til þess að fylgjast með samlöndum sínum keppa um Ólympíugullið. Klæðaburður Snoop vakti mikla athygli en hann var uppstrílaður við hvert tilefni. Toppurinn var þegar hann mætti ásamt bestu vinkonu sinni, Mörthu Stewart, að horfa á fimikeppni í hestaíþróttum og auðvitað klæddist tvíeykið reiðfatnaði frá toppi til táar.