Hjörtur Þórarinsson fæddist 10. febrúar 1927. Hann lést 23. júlí 2024. Útför hans fór fram 9. ágúst 2024.

Hjörtur vinur minn er látinn.

Hirti kynntist ég þegar ég var að kynna mér starfsemi Kiwanisklúbbsins Búrfells árið 1993. Síðan þá höfum við Hjörtur átt margar stundir saman í leik og starfi.

Hjörtur var ávallt reiðubúinn að taka að sér verkefni þrátt fyrir veikindi Ólafar Sigurðardóttur eiginkonu sinnar, hann var jafnframt reiðubúinn að vera mér til aðstoðar sem ritari þegar ég tók að mér stjórnunarstörf fyrir klúbbinn. Hjörtur þekkti vel sitt nærumhverfi og var fljótur að benda á úrlausnir.

Það síðasta sem við gerðum sem svæðisstjórar í Sögusvæði var að skipta um stjórnir í klúbbunum. Þar voru notaðar stjórnarskiptavísur sem Hjörtur samdi þegar hann var svæðisstjóri

...