Þegar litið verður til baka til sumarsins 2024 verður neongrænn litur, orðið „brat“ og bandarísku forsetakosningarnar vafalaust áberandi í hugum margra. En hvað er brat og hvernig tengist það kosningabaráttunni um æðsta embætti…
Kamala Harris hefur boðið sig fram til forseta Bandaríkjanna.
Kamala Harris hefur boðið sig fram til forseta Bandaríkjanna. — AFP

Þegar litið verður til baka til sumarsins 2024 verður neongrænn litur, orðið „brat“ og bandarísku forsetakosningarnar vafalaust áberandi í hugum margra.

En hvað er brat og hvernig tengist það kosningabaráttunni um æðsta embætti Bandaríkjanna? Brat er nýjasta plata söngkonunnar Charli XCX sem kom út í byrjun sumars og er hún troðfull af stuðandi lögum um partígellur sem haga sér eins og frekjur og skammast sín ekkert fyrir það. Platan er eiturgræn á lit, en Charli segist sjálf hafa reynt að velja lit sem veki óhug. Þrátt fyrir það virðist liturinn áberandi hvert sem maður lítur í sumar. Þá hafa margir aðdáendur Charli tekið upp á því að kalla þetta sumar „brat“-sumar. Netverjar trylltust svo aftur yfir fyrirbærinu þegar Charli birti í síðasta mánuði færslu á samfélagsmiðlinum X þar

...