Investigation Discovery er erlend sjónvarpsrás sem sýnir þætti um sönn sakamál. Ein þáttaröðin nefnist Blood Realations og fjallar um morð þar sem einn fjölskyldumeðlimur drepur annan, ekki af slysni
Morðvopn Það er víst til gnægð af þeim víða.
Morðvopn Það er víst til gnægð af þeim víða. — Morgunblaðið/Ásdís

Kolbrún Bergþórsdóttir

Investigation Discovery er erlend sjónvarpsrás sem sýnir þætti um sönn sakamál. Ein þáttaröðin nefnist Blood Realations og fjallar um morð þar sem einn fjölskyldumeðlimur drepur annan, ekki af slysni.

Eiginmaður myrðir eiginkonu, eiginkona myrðir eiginmann, sonur eða dóttir myrðir foreldri sitt og áfram mætti telja. Oftast er um að ræða morð innan auðugra fjölskyldna þar sem kraumandi hatur er að finna bak við glæsilegt yfirborð.

Þættirnir eru sviðsettir og dramatísk rödd kvenþular segir manni með reglulegu millibili að von sé á vondum tíðindum. Maður veit að engu er lengur hægt að treysta. Hjónabönd eru byggð á misskilningi þar sem einstaklingar þola ekki hver annan og börn elska ekki foreldra sína heldur ásælast arfinn. Í síðasta þætti

...