Eiríkur Kúld Davíðsson fæddist á Svarfhóli í Hraunhreppi á Mýrum 14. október 1930. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala 20. júlí 2024.

Foreldrar hans voru þau Inga Eiríksdóttir Kúld húsfreyja, f. 10. júní 1904, d. 6. janúar 1996, og Davíð V. Sigurðsson bóndi, f. 6. maí 1899, d. 22. júní 1998. Systkini Eiríks: Erla H. Valdimarsdóttir, f. 12. apríl 1923, d. 9. apríl 2011, Sesselja Davíðsdóttir, f. 22. ágúst 1928, d. 16. október 2000, og uppeldisbróðir Finnbogi Jónsson, f. 8. september 1940.

Eiríkur kvæntist Eyrúnu Jóhannsdóttur, f. 3. febrúar 1938, þann 1. desember 1957 í Hafnarfjarðarkirkju. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarnveig Þorsteinsdóttir og Jóhann S. Guðmundsson. Börn þeirra Eiríks og Eyrúnar eru: 1) Davíð, f. 17. ágúst 1957, eiginkona hans er Pálína Færseth, f. 16. desember 1957. 2) Bjarnveig, f. 23. ágúst 1957, maki hennar er

...