Stjarnan og Breiðablik skildu jöfn, 2:2, þegar liðin áttust við í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Garðabænum í gærkvöldi. Breiðablik er áfram í öðru sæti, nú með 34 stig, og Stjarnan er í sjöunda sæti með 24 stig
![Garðabær Emil Atlason fagnar marki sínu fyrir Stjörnuna í jafntefli gegn Breiðabliki í gærkvöldi. Emil er kominn með níu mörk í 18 leikjum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/4b529de8-1407-4149-be15-008bcf3b0b9e.jpg)
Garðabær Emil Atlason fagnar marki sínu fyrir Stjörnuna í jafntefli gegn Breiðabliki í gærkvöldi. Emil er kominn með níu mörk í 18 leikjum.
— Morgunblaðið/Ólafur Árdal
Besta deildin
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Stjarnan og Breiðablik skildu jöfn, 2:2, þegar liðin áttust við í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Garðabænum í gærkvöldi. Breiðablik er áfram í öðru sæti, nú með 34 stig, og Stjarnan er í sjöunda sæti með 24 stig.
Emil Atlason kom Stjörnunni yfir með marki úr vítaspyrnu, sem er hans níunda deildarmark á tímabilinu. Vítið var dæmt eftir að Davíð Ingvarsson handlék boltann innan vítateigs en Blikar mótmæltu harðlega þar sem Daníel Laxdal hafði hrint Davíð í jörðina skömmu áður.
Davíð lét þetta ekki á sig fá og lagði upp bæði mörk Blika með laglegum sendingum.
Hinn 19 ára gamli Haukur Örn Brink skoraði svo fimmta
...