![Gjaldtaka Skilti var sett upp vorið 2023 þar sem óskað var eftir frjálsum framlögum. Aðeins tvær milljónir skiluðu sér í kassann á síðasta ári.](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/f0bb038d-e587-4f03-be7f-bad088d74090.jpg)
Gjaldtaka Skilti var sett upp vorið 2023 þar sem óskað var eftir frjálsum framlögum. Aðeins tvær milljónir skiluðu sér í kassann á síðasta ári.
— Morgunblaðið/Skúli Halldórsson
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Brátt verða gestir og heimamenn skyldaðir til að greiða fyrir heimsókn í Hafnarhólmann við Borgarfjörð eystri sem þekktur er fyrir fjölbreytt fuglalíf og lundabyggðina.
Tillaga um að hefja undirbúning að gjaldtöku var samþykkt samhljóða með handauppréttingu á fundi heimastjórnar Borgarfjarðar á fimmtudag.
Í fundargerð kemur fram að starfsmanni sé falið að vinna að útfærslu gjaldtökunnar sem lögð verði fyrir heimastjórn í haust. Er starfsmanninum jafnframt falið að huga að viðhaldsþörf fyrir
...