Danski tónlistarmaðurinn Jørgen Olsen, annar tveggja Olsenbræðra sem sigruðu í Eurovision-söngvakeppninni árið 2000 með laginu Fly on the Wings of Love, kemur fram á Dönskum dögum í Stykkishólmi um komandi helgi
![Stykkishólmur Hátíð í bænum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/5b213907-12bb-464a-a70d-12b088c96aa3.jpg)
Stykkishólmur Hátíð í bænum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Danski tónlistarmaðurinn Jørgen Olsen, annar tveggja Olsenbræðra sem sigruðu í Eurovision-söngvakeppninni árið 2000 með laginu Fly on the Wings of Love, kemur fram á Dönskum dögum í Stykkishólmi um komandi helgi. Hátíðin í Hólminum á sér langa sögu; hefur verið haldin frá 1994 og er ein elsta bæjargleði landsins. Í tilefni af 30 ára afmælinu nú er mikið lagt undir og því var Jørgen Olsen kallaður til. Niels Olsen, hinn helmingur dúettsins, hætti í tónlistinni vegna veikinda árið
...